Quantcast
Channel: Svart á Hvítu – Trendnet
Viewing all 1880 articles
Browse latest View live

INNLIT: @INGRIDPALL

$
0
0

Eins og ég kom inn á í færslunni hér að framan þá rakst ég á svo fallegt instagram á smá netvafri í kvöld. Bjartur er sofnaður, Andrés er í bíó og þá er fullkominn tími fyrir mig til að sitja uppi í rúmi með tölvuna í fanginu og vafra um netið í leit af innblæstri fyrir heimilið. Þegar maður eyðir orðið svona miklum tíma heima hjá sér ( jú orlofið) þá fer maður enn meira að huga að heimilinu, svona ef það var hægt. Listinn lengist af hlutum sem manni “bráðvantar” og nokkrum sem hreinlega vantar í alvöru. Eins skemmtilegt og það er að uppgötva svona smekkkonur úti í heimi sem deila sama smekk og maður sjálfur, þá fylgir þessu jú alltaf löngunin að breyta og bæta við heimilið sitt sem er hreinlega ekkert alltaf svo jákvætt:)

Hin norska Ingrid Pallesen er smekkkonan að þessu sinni, hana má finna á instagram @ingridpall

Screen Shot 2014-11-08 at 11.34.49 PM

Screen Shot 2014-11-08 at 10.27.20 PM

Ingrid hefur augljóslega mikið dálæti á hönnunarklassík, PH Snowball ljósið er þó toppurinn á þessari mynd:)

Screen Shot 2014-11-08 at 10.27.45 PM Screen Shot 2014-11-08 at 11.39.17 PMScreen Shot 2014-11-08 at 10.28.53 PM

Nei sko, uppáhaldsrúmfötin mín:)

Screen Shot 2014-11-08 at 10.28.36 PM

String hillur og Menu veggkertastjakar.

Screen Shot 2014-11-08 at 10.28.10 PM Screen Shot 2014-11-08 at 10.27.32 PM

Sófahornið er huggulegt.

Screen Shot 2014-11-08 at 11.36.58 PM Screen Shot 2014-11-08 at 10.29.30 PM

Hér má sjá hvernig borðið leit út áður en sett var á það marmarafilma,

Screen Shot 2014-11-08 at 10.29.13 PM

Ég er ofsalega skotin í svarta Lyngby vasanum á stofuborðinu og gæti vel hugsað mér einn slíkann hingað heim, þá í hvítu:)

Screen Shot 2014-11-08 at 11.35.11 PM

Smekkkonur eins og Ingrid eru með Hay mottu sem baðmottu…

Screen Shot 2014-11-08 at 11.31.48 PM Screen Shot 2014-11-08 at 11.31.20 PM

Lyngby vasinn fær greinilega að flakka á milli staða á heimilinu:)

Screen Shot 2014-11-08 at 11.42.21 PM

Royal Copenhagen matarstell á þessu heimili en ekki hvað:)

Screen Shot 2014-11-08 at 11.38.13 PMScreen Shot 2014-11-08 at 11.40.14 PM

Ég varð að leyfa einni jólamynd að fylgja með frá því í fyrra, ég er nefnilega orðin svo spennt að fá jólatré í fyrsta skipti (það skal takast í ár) að það nánast ískrar í mér:)

Er ég nokkuð ein um það að vilja taka til-færa hluti-bæta og breyta til þegar ég sé innlit sem falla svona vel að mínum smekk?


SÆNGURGJAFIR

$
0
0

Ég fékk fyrirspurn í tölvupósti varðandi hvaða sængurgjafir hafa staðið uppúr hjá mér sem ég fékk eftir að Bjartur fæddist, oft veit maður ekkert hvað manni vantar eða jafnvel hvað maður eigi að gefa sjálfur vinkonum sínum. Ég ákvað að svara fyrirspurninni með stuttri færslu til að fleiri njóti (og til að ég fái afsökun til að birta eina krúttmynd af Bjarti).

bjartur

Ég fékk Babynest frá einni vinkonu minni í gjöf sem hefur komið sér einstaklega vel og verið notað frá fyrsta degi. Bjartur sefur á milli okkar uppi í rúmi í þessu og er í leiðinni mjög öruggur, mér líður líka betur vitandi það að ég geti ekki velt mér óvart á hann í svefni. Svo færi ég það yfir í vögguna hans á daginn en það fer mjög vel um svona lítil kríli með smá stuðning við sig. Án efa ein uppáhaldsgjöfin okkar:)  Á Íslandi er Petit.is söluaðili.

Á myndinni má líka sjá gírafann sem hann fékk frá vinkonum mínum í gjöf og hann sofnar við hann öll kvöld en það er hægt að velja um nokkur róandi hljóð. Ég geri ráð fyrir að flestar barnavöruverslanir selji þennan fína gíraffa:)

skart

Svo þykir mér mjög vænt um þetta hálsmen sem ég fékk frá mömmu daginn sem við komum heim af spítalanum en á því stendur Mamma. Það er frá Siggu & Timo en ég fór svo með það og lét bæta á hina hliðina nafninu hans og fótspori sem var tekið af honum uppá fæðingadeild. Pínulítið og krúttlegt:)

Þessar gjafir hafa mikið verið notaðar ásamt auðvitað svo mörgum öðrum fallegum gjöfum sem við/hann fengum.

x svana

FALLEGT INSTAGRAM ÞÓRUNNAR HÖGNA

$
0
0

Instagramsíður eru á vissan hátt eins og gott ókeypis tímarit, hægt er að eyða þar tímunum saman að skoða síður hjá smekkfólki útum heim allan, en það eru þónokkrar íslenskar síður sem ég held uppá. Þórunni Högna kannast flestir við, enda landsþekkt smekkkona sem ritstýrir núna sínu eigin tímariti, Home Magazine. Það kemur ykkur því varla á óvart að instagramsíðan hennar sé mjög smekkleg og hægt er að fá margar hugmyndir þaðan, tjahh eða smá jólafíling því hún virðist hafa þjófstartað aðeins jólunum:)

Screen Shot 2014-11-10 at 7.20.07 PMScreen Shot 2014-11-11 at 9.30.44 AM Screen Shot 2014-11-11 at 9.31.18 AM Screen Shot 2014-11-10 at 7.24.46 PM Screen Shot 2014-11-10 at 7.23.52 PM Screen Shot 2014-11-10 at 7.22.49 PM Screen Shot 2014-11-10 at 7.20.29 PMScreen Shot 2014-11-10 at 7.21.48 PM Screen Shot 2014-11-10 at 7.22.09 PMScreen Shot 2014-11-11 at 9.29.51 AMScreen Shot 2014-11-10 at 7.19.46 PM

Dásamlegar myndir og þessar pallíettuflíkur eru draumur ♡

Fleiri myndir á @thorunnh71 

x Svana

Fylgstu endilega með Svart á hvítu á facebook -hér 

Á GANGINUM…

$
0
0

Gangurinn á heimilinu er loksins hættur að vera alveg tómur og nokkrar myndir hafa verið hengdar upp og meðal annars þessi fíni fugl. Það er orðið dálítið síðan að ég stoppaði hann upp, en hann hefur aldrei fengið að fara upp á vegg fyrr en núna nýlega. Ég er mjög hrifin af uppstoppuðum dýrum þó að það sé alls ekki allra sem ég skil mjög vel. Fuglinum var skellt upp á nagla sem var þarna fyrir svo ég er eftir að ákveða mig betur hvort að fiðrildamyndirnar fái að vera þarna líka, mér finnst eitthvað furðulegt við að hafa bæði fugl og fiðrildi á sama vegg, en það er kannski bara ég?

12

Þegar gengið er út úr forstofunni þá er þetta það fyrsta sem þú sérð á heimilinu, þetta áhugamál mitt fær alltaf misjafnar undirtektir sem ég hef þó vanist. Það er jú ekki hægt að geðjast öllum:)

3

Svo var ég búin að skipta út Scintilla myndinni sem var fyrir ofan sófann og núna prýðir hún ganginn:)

Fylgstu endilega með Svart á hvítu á facebook -hér 

EIN ÍBÚÐ / ÞRÍR STÍLISTAR

$
0
0

Ég rakst á einstaklega skemmtilegt stílistaverkefni á dögunum þar sem að sænska fasteignasalan Fastighetsbyran fékk til liðs við sig þrjá þekkta stílista sem stíliseruðu sömu íbúðina hver á sinn hátt. Þessi hugmynd er algjörlega æðisleg og útkoman frábær og ættu flestir að geta tengt við rýmin sem þið sjáið og mögulega séð fyrir sér að vilja búa þar. Mikið væri skemmtilegt að sjá íslenska fasteignasölu reyna við þetta verkefni.

Tina Hellberg stíliseraði íbúðina í klassískum en töffaralegum skandinavískum stíl.

A-3F-3G-3K-3 J-3 H-3 E-3 B-3

Hans Blomquist stíliseraði íbúðina í hlýlegum rustic stíl.

A-2 B-2 E-2 F-2 G-2 H-2 J-2 K-2

Mikael Beckman stíliseraði íbúðina í klassískum sænskum stíl, mjög mikið í takt við stílinn hjá Svenskt tenn (sem er ein þekktasta innanhússhönnunarverslun í Svíþjóð frá 1924.)

G-1B-1

A-1 K-1J-1H-1 F-1

Hver er ykkar uppáhalds?

x Svana

Fylgstu endilega með Svart á hvítu á facebook -hér 

AÐVENTUKRANSALEIKUR HRÍM & TRENDNET

$
0
0

Núna er að fara í gang skemmtilegur aðventukransaleikur Hrím & Trendnet þar sem hægt verður að vinna sér inn 20.000 kr. gjafabréf í Hrím sem mun svo sannarlega koma sér vel fyrir jólin. Við viljum fá að sjá hvernig þið gerið aðventukransa og ætlum því að efna til smá keppni!

Það eina sem þarf að gera til að taka þátt er að vera með kertastjaka eða bakka frá Hrím og skreyta þá á skemmtilegan hátt og merkja svo myndina #TRENDHRIM & #hrimjol2014 á Instagram.

Þau í Hrím tóku sig til og skreyttu nokkra kertastjaka til að sýna lesendum Trendnet og gefa jafnframt góðar hugmyndir. Það er nefnilega svo gaman að geta nýtt það sem maður á fyrir en bæta svo við einföldum og fallegum skreytingum.

1

“Nýja String jólastjakann frá Ferm living þarf nú varla að skreyta en til að gera smá dúllerí fannst okkur koma vel út að setja slaufur úr snæri. Þennan stjaka má svo að sjálfsögðu nota allt árið.”

2

Geo vírastjakinn frá Bloomingville hefur verið vinsæll hjá okkur svo það eiga hann eflaust margir. Greni og kanill gefur góðan ilm og rauðu kertin gera hann alveg extra jóló.”

4

“Designletters Expresso bollana má nota í ýmislegt annað en að drekka kaffi. Okkur fannst fallegt að setja snæri utan um bollana og svo skreyttum svo með greni og klipptum út laufblöð úr gömlu jólablaði, súper einfalt og ódýrt! Hægt að gera þennan persónulegan með því að klippa laufblöð úr því sem maður á.”

33

“llumina stjakinn frá Kahler er svo skemmtilegur að því leiti að hann er með smá skál. Þetta er skemmtilegur árstíðastjaki sem hægt er að leika sér með. Við settum brjóstsykur sem við tengjum við jólin og kanilstangir til að fá góða lykt.”

5

“Hér eru marmarastjakar frá Ferm Living settir á Bloomingville viðarbakka og greni lagt á bakkann. Við vildum hafa þennan frekar látlausan en svo fannst okkur vanta smá glingur þannig að við settjum demantaóróa frá Louise Roe í miðjuna til að setja punktinn yfir i-ið.”

20.000 kr gjafabréf í Hrím verður svo veitt í verðlaun fyrir flottasta kransinn þann 28. Nóvember.

Núna er um að gera að leyfa hugmyndafluginu að leika lausum hala og koma sér almennilega í jólagírinn með því að gera aðventukransinn kláran.

 Hægt er að skoða alla stjakana á Hrím.is.

Munið svo að merkja myndina #TRENDHRIM & #hrimjol2014

ÓSKALISTINN: VILAC SPARKBÍLL

$
0
0

Það er ekki oft sem að leikfang situr á óskalistanum mínum, en ég vil þó reyndar meina að þetta sé á óskalistanum hans Bjarts. Vilac sparkbíllinn er eitt fallegasta leikfang sem ég hef séð og ég var aldeilis komin með augastað á honum áður en að litli kom í heiminn og ég veit að pabbinn er líka mjög spenntur fyrir þessum bíl. Bíllinn er nefnilega svo miklu meira en bara leikfang því hann er í leiðinni fallegt heimilispunt og það er ekki oft sem það er hægt að segja um leikföng.

a2032f139b0b3c9fafb354f096d13141

Bíllinn kemur frá franska fyrirtækinu Vilac sem stofnað var árið 1911.

06ef6a51db193dcffea813fead580029-1

06fe9db8a41d6bd7e1fe831ffec055a7

Elegant & fallegt gæðaleikfang.

Fyrir áhugasama þá er vefverslunin I am happy.is söluaðili Vilac á Íslandi, en þau fögnuðu einmitt 2ja ára afmæli í dag!

Talandi um afmæli, mér tókst í dag að ákveða vinning í afmælisgjafaleik bloggsins, þið eruð eftir að tryllast úr spenningi, ég þarf bara að ganga frá nokkrum lausum endum og þá keyrum við hann í gang!

Eigið góða helgi:)

Fylgstu endilega með Svart á hvítu á facebook -hér 

SCINTILLA Á BLICKFANG

$
0
0

Ef það vill svo skemmtilega til að þið séuð stödd í Kaupmannahöfn um helgina þá mæli ég með að kíkja á hönnunarsýninguna Blickfang. Íslenska hönnunarfyrirtækið Scintilla er einmitt að sýna vörurnar sínar þar um helgina en fyrir áhugasama þá eru þau staðsett á bás 1.23.

10702088_963046780390874_683331676543467194_nScintilla-púðar-400x266scintilla-aug2012-IMG_211

Það hefur eflaust ekki farið framhjá ykkur dálæti mitt á þessum vörum, svo ég vona svo sannarlega að þau nái að heilla gesti sýningarinnar svo fleiri fái að njóta:)

Blickfang sýningin fer fram í Øksnehallen á Vesterbro þann 15. og 16.nóvember frá kl. 10-18.

:)


FALLEGT INSTAGRAM: HELTENKELT

$
0
0

Hin sænska Anna Malin er smekkkonan að þessu sinni, hún starfar sem grunnskólakennari á daginn og sinnir áhugamáli sínu -að blogga á kvöldin. Hér býr hún ásamt eiginmanni sínum og tveimur sonum á þessu fallega heimili sem staðsett er í Helsingborg. Það er hægt að fylgja Önnu á instagram @heltenkelt eða skoða fallegt blogg hennar, hér fyrir enn meiri innblástur.

Screen Shot 2014-11-15 at 6.54.01 PM

Screen Shot 2014-11-15 at 6.50.11 PMScreen Shot 2014-11-15 at 6.51.35 PM Screen Shot 2014-11-15 at 6.52.19 PM Screen Shot 2014-11-15 at 6.52.36 PM Screen Shot 2014-11-15 at 6.52.54 PM Screen Shot 2014-11-15 at 6.53.16 PM Screen Shot 2014-11-15 at 6.53.30 PM Screen Shot 2014-11-15 at 6.53.45 PM

Dásamlega fallegt heimili og fullt fullt af fínum hugmyndum:)

Vonandi var helgin ykkar góð!

 

KLASSÍSK HÖNNUN: 265 LAMPINN

$
0
0

Þrátt fyrir að hafa verið hannaður á áttunda áratugnum þá er lampinn 265 sem Paolo Rizzatto hannaði fyrir Flos alveg að toppa sig í vinsældum um þessar mundir. Það er ekki hægt að fletta einu hönnunartímariti í dag án þessa að rekast a.m.k. einu sinni á þennan lampa, enda gullfallegur og afar formfagur. 
8a62d6423c62811ed3dae6ad0ac78049aa9401c3c78f19bb02c7dd0de0b8000e 329a4c90e0aa715a450628bb688020c3-1598a18b1614ea9c3940075d2dc8026aa8e3550f2eb5f7467e5f851f7db55cc8d da4401ed4ce8da4728d2d8c6d5a5f242

265 lampinn var hannaður árið 1973 og eldist hann eins og gott rauðvín.

Flottur lampi ekki satt!

Fylgstu endilega með Svart á hvítu á facebook -hér 

EIN FRÆGASTA ÍSLENSKA HÖNNUNIN Í NÝJUM BÚNING

$
0
0

Þið kannist eflaust flest við Ingibjörgu Hönnu, en ef ekki þá þekkið þið pottþétt verkin hennar. Krumminn er líklega ein þekktasta íslenska hönnunin sem gerð hefur verið, um hann hefur verið fjallað í fjölmörgum erlendum tímaritum og fæst hann víða um heiminn ásamt því að prýða ótalmörg íslensk heimili. Ingibjörg Hanna gefur núna út nýja útgáfu af Krumma og fatahenginu Ekki Rúdolf sem einnig hefur notið mikilla vinsælda. Í nýju útgáfunni nýtur viðurinn sinn vel og eflaust margir sem gleðjast yfir þessum fréttum!

KRUMMIvidur

ERvidur

Ekki Rúdolf er flottur undir skartgripi eða uppáhaldsflíkurnar,

NaturKrummi

Ég er mjög hrifin af þessum nýju útgáfum ♡

 

LÍTIL & HUGGULEG STOFA

$
0
0

Hér er ein lítil og krúttleg stofa/borðstofa sem gefur nokkrar góðar hugmyndir,

SFDEF983528197243E19AA1F09409B0C449SFD107B8F05D9624C4198D4CE6714C2890A SFD6A8585A49DFD4D98BA3C15CB045D4942

Ég er sérstaklega hrifin af veggnum með boxhillunum í bland við innrammaðar myndir og röndótti gangurinn er líka töff! Alltaf ætlaði ég nú að mála einn vegg röndóttan á heimilinu, ætli það fari að koma að því:)

VILTU VINNA 10 ÞÚSUND KRÓNA GJAFABRÉF Í LINDEX?

$
0
0

*Uppfært* 

Búið er að draga út vinningshafa og þá má sjá neðst í færslunni, kærar þakkir fyrir frábæra þátttöku!

Hvað er betra en að byrja daginn á því að gefa 2x 10 þúsund króna gjafabréf í Lindex? Eins og þið tókuð líklega eftir þá var Lindex að opna nýja og glæsilega verslun í Kringlunni sem selur einungis kvenfatnað. Hún er þó bara örfáum skrefum frá minni uppáhaldsverslun sem er Lindex Kids (barna+meðgönguföt) mamman (ég) hefur aðeins fengið að sitja á hakanum undanfarnar 9 vikur því ég er búin að uppgötva hvað það er bilaðslega gaman að versla föt á lítil kríli! Ég “slysast” líka stundum inn í stelpudeildir og hef fundið þar föt á Bjart sem eiga jafn mikið erindi til stráka sem stelpna, Bjartur var síðast í gær í fallegum buxum myndskreyttum kettlingum og hvolpum sem ég fann í stelpudeild í einni verslun erlendis. Síðan hvenær eru kettlingar meira fyrir stelpur en stráka? Síðan voru skírnarbuxurnar hans úr stelpudeildinni í Lindex, þeim fylgdi reyndar bleikur kjóll sem ég er enn eftir að finna nýjan eiganda að, þið hefðuð átt að sjá svipinn á Andrési þegar ég kom heim með það dress haha.

10730883_760669107332361_5159398761794903730_n 1374128_764051610327444_5637781043152093703_n 10395854_761595197239752_4699900208486384681_n 63748_767617573304181_3275165936336520312_n 1554604_761594183906520_3299870405044446601_n 10610745_760657077333564_8636985797927626774_n 10636145_764009126998359_1355910824479435213_n 1901965_760678510664754_627049482670713105_n 10384928_761595907239681_4485640143267269510_n

Ég tók saman nokkrar flíkur sem mér þykja vera mjög flottar:)

Skildu endilega eftir athugasemd með fullu nafni ef þú vilt næla þér í 10 þúsund króna gjafabréf í Lindex!

Og ertu svo ekki pottþétt að fylgja Trendnet á Facebook?

Ég dreg út tvo heppna lesendur í kvöld.

Eigið góðan dag:)

*Uppfært*

Þær heppnu sem nældu sér í 10 þúsund króna gjafabréfin í Lindex eru:

Barbara Ann Howard og Hafdís Bjarnadóttir

Vinsamlega hafið samband á trendnet@trendnet.is fyrir frekari upplýsingar:)

Á ÓSKALISTANUM: COLORFUL

$
0
0

Herregud draumabók heimilisperrans er að koma út… Stílistadrottningin Lotta Agaton og ljósmyndarinn Pia Ulin fagna 10 ára samstarfi sínu með því að gefa út bókina Colorful, nafnið á þó fátt sameiginlegt með innihaldi bókarinnar en litir eru eitt sem einkennir ekki stílinn hennar Lottu Agaton.

Þessi er væntanlega núna á næstu dögum en hana er hægt að kaupa í forsölu hér.

BOOKCOLORFUL

Ég elska Lottu Agaton og allt sem hún gerir, ég gerði því tilraun til að kaupa bókina en sænskukunnáttan mín gæti þó mögulega komið í veg fyrir að hún endi í lúgunni minni:)

FALLEGT BARNAHERBERGI

$
0
0

Ég rakst á þetta einstaklega fallega barnaherbergi á pólska barnablogginu Skandikids.
tapeta-harlequin-w-romby-ferm-living

Þessi litasamsetning er algjört æði, myntugrænn í bland við svart&hvítt!

domek-ferm-living-dorm dorm-ferm-living-sklep-scandikids tapeta-harlequin-w-miętowe-romby-ferm-living-sklep-scandikids1

Fullt af góðum hugmyndum að finna hér!

x svana


BARNAHERBERGI Í VINNSLU

$
0
0

Ég er loksins byrjuð að gera barnaherbergið klárt, það tók mig ekki nema 10 vikur að finna “nennuna”:) Ég var nefnilega andvaka í nótt og eyddi ágætis tíma í símanum mínum að skrolla í gegnum Pinterest appið (mæli með því), og er komin með um 270 góðar hugmyndir í albúmið “Kids room”. Ef þið hafið áhuga á að fylgja mér á Pinterest þá getið þið gert það, hér. 

Þetta byrjaði á því að Bjartur var í dag í samfellu sem var svo fallega grænblá á litinn að ég ákvað að mála einn vegg í herberginu í þeim lit, því var skundað í Byko eftir smá sunnudagsstúss og keypt málning og komið við í A4 og keyptir litlir doppulímmiðar. Ætli það séu ekki að vera komin um tvö ár frá því að ég ætlaði mér að gera vegg á heimilinu doppóttan, það hlaut að koma að því á endanum!

Þið afsakið myndgæðin, þær eru fengnar af snapchatinu mínu,

Screenshot_2014-11-23-21-03-23Screenshot_2014-11-23-21-02-43

Þetta tók mig svo ekki nema nokkrar mínútur,

20141123_152026 20141123_155553

Það er langt síðan að þessi var uppá vegg síðast, en finnst hann alveg tilvalinn fyrir barnaherbergi, (keyptur í Hollandi).

20141123_155658

Svo ein draslmynd í lokin svo þið sjáið ástandið, það er enn heilmikið eftir!

Hugmyndin er að Andrés smíði hillur fyrir vegginn á móti kommóðunni, einnig er ég eftir að velja loftljós og hengja myndir upp á vegg.

Ég leyfi ykkur að fylgjast með:)

Fylgstu endilega með Svart á hvítu á facebook -hér 

JÓLAHUGMYNDIR: JÓLATRÉ Í VASA

$
0
0

Eruð þið búin að líta á dagatalið ykkar í dag? Jú í dag er nefnilega 24. og það þýðir bara eitt, mánuður til stefnu!

Mér finnst mjög fallegt að vera með lítið jólatré í vasa eða jafnvel í potti, þetta er svona aukajólatré sem getur þessvegna farið mun fyrr upp en hitt sem verður svo skreytt alveg hátt og lágt.

9931b33c8290f9b3af045fc300d64cfe-1

Lítið jólatré eða grein, pínulítið eða örlítið stærra? Mér finnst aðaltrixið vera helst að hafa tréð sem látlausast.

6513ad7ee865716c163e03398a48c262-1a5de319418120558be6cf3a8bf1b7755-1 df287fea23bd6254ff435e2bcd510a06-1e079cfc5d77a709391901f46453280f1 934d69dec8627a3368a3db7f4106c6a0-1eb8af1d5e717aabb55ffc61f5cdb5351-1 c4f09f61431c27ec44c790571512cc9b f75f8ce7fa84b68d0a8cc3c2bde22e56 55b891bd6b6a7c6673420c64810d5740 869a6b402be5c3024bc42fa9940ae600 9fdaf17d625f9fa384c5f2de97b69146

Það má sko alveg skella einu svona upp í nóvember:)

Fylgstu endilega með Svart á hvítu á facebook -hér 

GJAFALEIKUR: LOFTBELGUR EFTIR BERGRÚNU ÍRISI

$
0
0

Hér í herberginu hans Bjarts er allt að smella hægt og rólega, ég hengdi a.m.k. upp fyrstu myndina áðan!

Bjartur fékk þessa fallegu teikningu í skírnargjöf frá vinkonu okkar henni Bergrúnu Írisi. Hún Begga er nefnilega ótrúlega hæfileikaríkur teiknari og eitt af hennar nýjustu verkum eru þessir fallegu loftbelgir, á teikninguna eru svo bætt við inní lítil ský öllum fæðingarupplýsingum ásamt nafni barnsins.

IMG_1609

Svo fer þessi krúttlega ugla eftir hina teiknivinkonu okkar, hana Heiðdísi næst uppá vegg.

IMG_1610

Bambann fékk Bjartur í skírnargjöf frá frændfólki sínu og spiladósina gáfu vinnufélagar pabbans honum ásamt fleiru. Allt mikið smekkfólk þar á ferð:)

IMG_1612

Til eru nokkrar útgáfur af loftbelgjunum, hver öðrum fallegri og koma þeir í takmörkuðu upplagi. Okkar er með dýraþema:)

IMG_1614

Hér að neðan má sjá nokkrar ólíkar týpur af loftbelgjum,10365827_854921984558635_239603173072506825_n

Okkur Beggu langar til að gleðja einn heppinn lesanda með nýjasta lofbelgnum frá henni með MARMARA þema:)

10672393_858695527514614_7146732893273400565_nÞessi er einstaklega flottur, og verður enn flottari þegar búið verður að bæta inní öllum fæðingarupplýsingunum.

Til að eiga séns á að eignast þessa fallegu teikningu þarftu að skilja eftir athugasemd hér að neðan og vera búin/n að líka við Óskalistann á facebook en það er síðan hennar Bergrúnar Írisar þar sem hægt er að fylgjast með allri snilldinni sem hún býr til:) Ásamt því að teikna loftbelgi þá gefur hún nefnilega út barnabók, myndskreytir allskyns aðrar bækur og plötuumslög, málar málverk, veggmyndir, leikmyndir og svo margt margt fleira!

Taktu endilega þátt, við drögum út á morgun:)

x svana

 

JÓLAFÖNDRIÐ: KÖNGLAR

$
0
0

Ég alveg er dottin í föndurgírinn og næst á dagskrá er að týna köngla og draga upp límbyssuna. Ég er alveg á því að föndur er sko alls ekki neitt hallærislegt og það er vel hægt að búa til mjög fallega hluti í höndunum (eins og þið vissuð vonandi!)

Það helsta sem þarf að huga að fyrir könglaföndur er að sjálfsögðu að skola könglana og þurrka svo vel til að fá ekki pöddur skríðandi úr jólaskrautinu, það er sko ekkert jóló við það.  Ég myndi mæla með að þurrka þá á dagblaði í 2 daga á hlýjum stað, helst þó útí bílskúr. Svo er bara að annaðhvort spreyja þá, mála, skella á glimmeri eða hafa þá au natural.

9806c441eefa354c67267e8bda7da0d8

db1fea917bfc

Ég ætla að skella í svona köngla á bandi til að hengja í gluggann og er svo að íhuga að gera útihurðarkrans í fyrsta skipti ásamt nokkrum stökum til að skreyta aðventukransinn með.

Talandi um aðventukrans/kertastjaka þá rissaði ég einn upp í kvöld sem verður smíðaður á morgun, vonandi lukkast hann vel og þá sýni ég afraksturinn. Hann lúkkar allavega nokkuð vel í höfðinu á mér:)

Fyrir áhugasama föndrara þá mæli ég með Pinterest fyrir allskyns könglaföndurshugmyndir, hægt að slá inn “Pine cone christmas crafts”

P.s. Vinningshafinn í Loftbelgjaleiknum var hún Unnur Kristjánsdóttir!

“Einkasonurinn yrði meira en lítið hrifinn af þessum fallega loftbelg (og mamman ekki síður) þar sem hann hefur verið að velta sér upp úr loftbelgjum síðustu vikurnar og framkvæmt hinar ýmsu tilraunir. Virkilega hæfileikaríkur listamaður hún Bergrún.” 

Kæra Unnur, sendu mér endilega póst á svartahvitu@trendnet.is

x svana

KVÖLDFÖNDRIÐ

$
0
0

Hversu notalegt er að eyða föstudagskvöldi í smá föndur:)

Ég krossa fingur að þesssi blessaði aðventu”krans” minn heppnist en ég er ennþá að ákveða hvort þetta var sniðug hugmynd. Næst er þá að skreyta hann smá og svo vonandi sýni ég lokaútkomuna.
IMG_20141128_223626

Æj og svo smá Andrés og Bjartur með á myndinni, það má:)

Viewing all 1880 articles
Browse latest View live