Það er að sjálfsögðu hálfgerð skylda okkar að skoða jólainnlit svona korter í jólin, dökkt og sjarmerandi heimili í Kaupmannahöfn hjá engum öðrum en útstillingarstjóra í minni uppáhalds verslun – Illums Bolighus. Þrátt fyrir að þetta glæsilega heimili hafi fyrst birst í jólablaði Bo Bedre fyrir ári síðan þá á það enn erindi enda klassíkin allsráðandi og við látum svona falleg jólaheimili ekki framhjá okkur fara.
Takið eftir skilrúminu þar sem hægt er að loka af borðstofuna og stofuna, frábær lausn!
Ég gæti vel hugsað mér svona risa jólastjörnu á mitt heimili, skemmtilegt og öðruvísi jólaskraut.
Hjá sumum er eitt jólatré ekki nóg, heldur skulu þau vera tvö:)
Myndir: Kristian Septimius Krogh
Útstillingarstjórinn Martin Gaaes hefur augljóslega mjög næmt auga fyrir fallegum hlutum og smáatriðum og sést það vel á heimili hans, jólaskrautið og allar uppstillingar eru æðislegar. Viðtalið í heild sinni má lesa hér á vefsíðu Bo Bedre, – mæli með.