Quantcast
Channel: Svart á Hvítu – Trendnet
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880

9. JÚNÍ ♡

$
0
0

Í gær fagnaði ég þrítugsafmælinu mínu og átti alveg hrikalega góðan dag með fjölskyldunni og vinum. Dagurinn byrjaði á ansi ljúfum nótum en við Andrés trúlofuðum okkar eldsnemma um morguninn en ég fékk hring og blóm ásamt morgunverði í rúmið sem kom mér algjörlega á óvart. Við erum búin að vera saman í 13 ár svo mér verður líklega aldrei skilað uppúr þessu:) Ég var búin að ákveða að taka mér frí frá vinnu og byrjaði daginn á smá dekri og hitti svo mína bestu í lunch. Ég var líka með Trendnet snappið í gær svo einhver ykkar sáu mögulega brot af deginum:)

13413039_10154901610753332_2788745376694556052_n

Ég get ekki hætt að horfa ♡

13389350_10208910315656663_2810205_o

Við Rakel ákváðum að tríta okkur í hádeginu og fara út að borða, Sæta svínið varð fyrir valinu því okkur langaði að prófa eitthvað nýtt. Ég er nú almennt ekki oft að tala um mat hér á blogginu, en þeir sem eiga skilið hrós skulu fá hrós. Ég er alveg agalega skotin í matnum þarna og enn skotnari í þjóninum okkar sem var algjör æðibiti og söng fyrir mig afmælissönginn sem gladdi mig mikið. Ætla að gera heiðarlega tilraun að setja inn video-ið hér að neðan.

13410784_10208910317536710_2093078374_o

Við deildum nokkrum réttum saman og smökkuðum líka eftirréttina sem voru hriiiikalega ljúffengir. Við rúlluðum bókstaflega út og ég gat varla snert við kvöldmat í gærkvöldi en planið var að fara út að borða méð Drésa til að halda upp á daginn haha.

13441809_10154903439443332_1244851814_o

Þessi er algjört æði… skammar mig mögulega að setja myndina á netið. Ólétt og agalega sæt:)

13441939_10154903430953332_870619603_o

Mæli með þessum stað:)

13441852_10154903827813332_1335918890_o.png

Er ekki alveg nauðsynlegt að tríta sig aðeins á afmælisdeginum? Ég var búin að vera svo bilað skotin í fjaðrakúst í Farmers Market sem er þó frekar ópraktísk kaup og ákvað að leyfa mér hann í gær.

13405477_10154903432248332_638264112_o.png

Og þessi lopapeysa fékk líka að fylgja með í pakkanum, núna er bara að plana útileguna:) P.s. bara til að það fari ekki á milli mála þá greiddi ég fyrir vörurnar. Ég er þó búin að slá met í myndbirtingum af sjálfri mér í þessari færslu, hefur aldrei gerst áður og mun líða þangur tími þar til næst haha. Í gær var þó aðeins byrjunin á afmælinu, ég á von á allri fjölskyldunni heim á morgun og í næstu viku ætla ég að skála í nokkra kokteila með vinkonunum. Ég kveð í bili, þessi þrítuga og trúlofa! Eigið góða helgi x

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.421111


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880