Quantcast
Channel: Svart á Hvítu – Trendnet
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880

BARNAHERBERGIÐ: ÆVINTÝRAMOTTA

$
0
0

IMG_0159_2

Hversu fín er þessi ævintýramotta frá OYOY, ég verð að viðurkenna að ég er skotin í henni. Hún er ólík öðrum leikteppum því hún er svo látlaus og einföld í hönnun sinni og gæti mögulega verið alltaf uppivið án þess að taka of mikið “pláss” í herberginu. Hinsvegar er ég líka skotin í String hillunni, það vill nefnilega til að það er String hilla með skrifborðsplötu í barnaherberginu þar sem mamman ætlaði að nýta herbergið sem skrifstofu á leikskólatíma, en það vill svo til að sá litli hefur verið svo duglegur að labba á plötuna að það þarf líklega að taka hana niður tímabundið. Ég er því að meta valkostina, hvort ég ætti að bæta við skáp eða mögulega finna mjúka kanta til að setja á borðplötuna, það væri a.m.k. ódýrari kosturinn:)  Fyrir áhugasama þá selur Snúran mottuna og Epal String hillur…

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.42111


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880