Hér er eitt stykki dásamlegt jólainnlit í tilefni þess að núna eru bara 5 dagar til jóla. Þetta fallega heimili birtist í danska tímaritinu Femina og veitir svo sannarlega innblástur af jólaskreytingum og jólainnpökkun. Skreytingarnar eru ekki mjög íburðarmiklar, könglar á bakka, greinar í vasa og mistilteinn hengdur yfir dyraop, hann er jú tákn jólanna hjá mjög mörgum en þessi hefð virðist ekki hafa náð hingað á klakann. Innlitið birtist á vef Femina 1.desember sem útskýrir mögulega hversu látlaust jólaskrautið er, en ef ég skoða nýrri jólainnlit þá eru þau “all in”… Næsta verður þannig:)
Image may be NSFW.
Clik here to view.Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view. Image may be NSFW.
Clik here to view.
Þessi hreindýr sprengja allan krúttskala… hversu sætt jólastofupunt. Svona punt fengi að sjálfsögðu ekki að vera kyrrt í nokkrar mínútur á mínu heimili en það má leyfa sér að dreyma. Ég vona svo sannarlega að þið munið eiga yndislega helgi, mín mun fara í jólagjafakaup og aðra jólagleði, ég er dálítið á síðustu stundu týpa svo ég verð ekki hissa ef mér tekst ekki að klára jólapakkana fyrr en kl. 23 á Þorláksmessukvöld.