Quantcast
Channel: Svart á Hvítu – Trendnet
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880

NÆSTA SKREF: NÁM!

$
0
0

Ég er búin að liggja undir feld síðustu daga og íhuga hvaða skref ég ætla að taka í skólamálum.

Niðurstaðan er komin í hús, ég ætla í nám í janúar! Ég hef undanfarna mánuði velt fyrir mér allskyns skólum og hvað henti mér best, mér finnst ég þó vera búin með þann kafla í bili að flytja erlendis og finnst ég heldur ekki vera tilbúin að hætta öllu sem ég er að gera í dag til að fara erlendis í nám. Fyrir utan það skulda ég heilan helling í námslán og það að verða tekjulaus í 2 ár á námslánum (ef ég færi í master) er hreinlega ekki spennandi kostur fyrir mig eins og er.

Vegna þess að innanhússhönnun er ekki kennd á Íslandi þá fann ég frábæran kost fyrir mig sem er fjarnám í innanhússhönnun frá Copenhagen School of Interior design. Námið dreifist á 30 mánuði (að meðaltali) og gert er ráð fyrir að nemendur vinni með náminu. Þó veitir námið aðeins diplóma og því kemur slíkt nám ekki í stað háskólaprófs ef einhverjir sem eru að lesa þetta vilja leggja fyrir sig innanhússhönnun sem framtíðarstarf, þó að allt sé auðvitað hægt. Þetta getur þrátt fyrir það hentað mörgum og hentar mér á þann hátt sem viðbót við mitt háskólanám og það sem mig vantar uppá fagkunnáttu þegar kemur að teikningum og almennt ferli í innanhússhönnun. Ég græði ekkert á því að halda þessum upplýsingum fyrir mig sjálfa og það gæti jafnvel verið skemmtilegt ef fleiri vilja skrá sig! Er ekki janúar tilvalinn mánuður til að prófa eitthvað nýtt? Núna get ég amk ekki hætt við þar sem að þið vitið öll planið mitt:)

Hægt er að sjá allar upplýsingar um námið hér.

11889525_781948475247282_9028486869369468993_n

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.4211


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880