Þar sem að sumarið hefur ákveðið að láta ekki sjá sig næstu vikuna er þó tilvalið að koma heimilinu í smá sumarskap. Hægt er að kalla fram sumarstemmingu á svo ótalmarga vegu…
-Hafðu pottablóm á heimilinu og/eða afskorin blóm í vösum.
-Skreyttu heimilið með litríkum púðum í sófanum.
-Keyptu þér sumarleg handklæði fyrir baðherbergið.
-Skræpóttar gólfmottur og litrík rúmteppi hressa við heimilið.
Hugmyndirnar eru endalausar!