Quantcast
Channel: Svart á Hvítu – Trendnet
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880

SÍÐUSTU DAGAR …

$
0
0

85bdf33200f24406dc81bbda82656bde

Síðustu dagar hafa einkennst af of mikilli vinnu og minni svefn. Ég er reyndar fegin að Hönnunarmars sé búinn svo önnur verkefni fái minn tíma, t.d. stórskemmtilega Nude Magazine verkefnið sem ég er á fullu í núna:) Við ætlum reyndar bara að byrja smátt sem er gott, því að góðir hlutir gerast nefnilega hægt! Við erum búnar að mynda hjá tveimur stórglæsilegum píum og svo hef ég verið í kvöld að raða saman “stöff” síðum sem er eitt það allra skemmtilegasta sem ég geri.

1c0514119c3660d157a3427b8721216e

Svona ljósasería er á óskalistanum, ótrúlega töff og sómar sér vel inni og úti! Ætli það sé hægt að kaupa svona hér heima?

tumblr_lsx9o5zVsV1qznrwro1_1280

Svo eru falleg gleraugu ekki aðeins á óskalistanum heldur frekar á neyðarlistanum. Mín eru nefnilega tvíbrotin og því bera þau nafnð “nördagleraugu” með rentu þessa dagana þar sem að þau eru TEIPUÐ. Allar ábendingar um besta úrvalið af gleraugum eru vel þegnar:)

4a8ddf6de4ce2ad12cfa23b92d095b1f

Hollur matur þarf að eignast stærra pláss í mínu lífi þessa dagana, ólétta konan hefur nefnilega aðeins verið að missa sig síðustu mánuði:)

799a0c2d1fc6a3e8a7ffb2cfd76800fd

Vorið er loksins komið og ég bíð spennt eftir blómunum, eitt stykki blómvöndur í vasa lífgar nefnilega öll heimili við! Ása Regins ætti að vera búin að kenna okkur það;)

Það var ekki fleira í bili, vonandi hafið þið öll það gott:)

-Svana


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880