Quantcast
Channel: Svart á Hvítu – Trendnet
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880

EIGENDUR VIPP BÚA SMART Í NEW YORK

$
0
0

Eigendur danska hönnunarmerkisins Vipp sem er jafnframt eitt fremsta hönnunmerki dana, hafa komið sér vel fyrir á undanförnum árum á Manhattan þar sem þeim hefur tekist að sameina heimili sitt við sýningarrými og taka hér á móti mögulegum viðskiptavinum og áhugasömum um danska hönnun og list.

Heimilið sem staðsett er í Tribeca hverfinu er einstaklega glæsilegt og má hér sjá allt vöruúrval Vipp, allt frá eldhúsi, baðinnréttingum, húsgögnum og smávörum. Sofie og Frank Christensen Egelund eigendur Vipp hönnuðu Vipp sýningarrýmið með það í huga að hér myndu þau búa ásamt tveimur börnum sínum. Hér var áður staðsett gömul verksmiðja og tók parið sér heilt ár í að koma sér fyrir og endurhanna rýmið í þessu húsi sem byggt var árið 1883.

Hver væri ekki til í að búa hér? Kíkjum í heimsókn –

Myndir frá Vipp.com / Ljósmyndari : Adrian Gaut

The post EIGENDUR VIPP BÚA SMART Í NEW YORK appeared first on Trendnet.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1880