Ég hef undanfarnar vikur fylgst spennt með framkvæmdum hjá smekkdömunni Önnu Kristínu Óskarsdóttur og unnusta hennar Reynari Ottossyni en þau festu kaup á sinni fyrstu íbúð í sumar. Þau hafa staðið í ströngu í framkvæmdum og íbúðin er í dag orðin fokheld og heilmikil uppbygging sem tekur við – sem er jú skemmtilegasti parturinn að okkar mati!
Anna Kristín ætlar að leyfa okkur að fylgjast með framkvæmdunum frá A-Ö hér á Svart á hvítu og ég get hreinlega ekki beðið eftir að sjá fleiri myndir og einnig fá að heyra hverjar hennar hugmyndir eru varðandi val á innréttingum, gólfefnum, liti á veggjum og öllu þar á milli. Þetta verður eitthvað!
Við byrjum á því að deila með ykkur nokkrum framkvæmdarmyndum ásamt myndum af íbúðinni fyrir framkvæmdir svo við getum farið að velta fyrir okkur öllum möguleikunum sem eru ó svo margir.
Dásamleg mynd af systrunum vera að stytta sér stundir á meðan foreldrarnir vinna.
Anna Kristín og Reynar voru eins og svo margir föst á leigumarkaðnum í mörg ár og því var mikil gleði þegar þeim tókst að festa kaup á sinni fyrstu íbúð sem þau stefna á að flytja inn í á næstu vikum.
Anna Kristín er menntuð sem ljósmyndari og starfar við fjölbreytt verkefni ásamt því að fljúga um loftin blá sem flugfreyja. Hún er þekkt fyrir fallegan og afslappaðan stíl, oftast með kaffi í hönd & stundum kampavín. En hún kann svo sannarlega að njóta lífsins.
// Hér að neðan má sjá myndir af íbúðinni fyrir framkvæmdir.
Hvað eruð þið búin að gera hingað til?
Kom eitthvað ykkur á óvart?
Hafið þið getað gert mest sjálf eða þurft að nýta ykkur iðnaðarmenn?
Hvenær stefnið þið á að flytja inn?
Eruð þið byrjuð að skoða innréttingar og gólfefni?
Við hlökkum til að deila með ykkur fleiri framkvæmdarhugmyndum og myndum hér á blogginu ♡ Þið getið einnig fylgst með Önnu Kristínu á Instagram @annakristinoskars þar sem hún deilir í story framkvæmdum, lífinu og því sem heillar augað.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
The post ANNA KRISTÍN & REYNAR: TAKA HEIMILIÐ Í GEGN FRÁ A-Ö appeared first on Trendnet.