Í dag opnar opnar lagersala heildsölu Ásbjörns Ólafssonar í Holtagörðum á slaginu klukkan 12:00 og stendur hún yfir til sunnudagsins 4. nóvember. Lagersalan verður haldin í Holtagörðum, við hliðina á Bónus á fyrstu hæð og má þar finna gríðarlegt úrval af vörum frá fjölda þekktra vörumerkja eins og Bitz, Iittala, Södahl, Rosti, Pyrex, Nuance, Westmark, Sveico, Amefa og Rug Republic á frábærum verðum.
Ég verð fjarri góðu gamni þar sem ég er stödd í Brighton – en ég fór á síðustu lagersölu og gerði mjög góð kaup! Ég vona þó að það verði eitthvað eftir þegar ég kem heim og kíki þá á úrvalið. Það verður reyndar bætt við nýjum vörum mjög reglulega og því eitthvað nýtt á hverjum degi.
Lagersalan verður opin á eftirfarandi tímum:
Alla virka daga frá 12-18
Laugardaga frá 12-17
Sunnudaga frá 13-17





Ég vona að helgin ykkar verði góð! Mín verður alveg þokkaleg hér í útlandinu:)
// Fylgist einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
The post TRYLLT LAGERSALA // BITZ – IITTALA & FLEIRA appeared first on Trendnet.