Fallegir skrautlistar í loftum, fiskibeinaparket, marokkóskar gólfmottur og stórir bjartir gluggar – þarf eitthvað meira? Jú mögulega hugguleg húsgögn og vel valdar innréttingar og útkoman er glæsilegt heimili þar sem Haniel Møller, skartgripahönnuður býr ásamt fjölskyldu sinni í Hellerup, Danmörku. Innlitið birtist fyrst í uppáhalds blaðinu mínu, Bolig Magasinet – sjá viðtalið í heild sinni hér.
Þessar mottur eru alveg æðislegar, sérstaklega þessi litríka við svalarhurðina! Sjá fleiri myndir hér hjá Bolig Magasinet.
// Fylgist einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
The post FALLEGT HEIMILI SKARTGRIPAHÖNNUÐS Í DANMÖRKU appeared first on Trendnet.